
Um mig

Ormétin rekaviður
Rekaviðurinn sem berst hingað til Íslands kemur frá Síberíu og Rússlandi. Það getur liðið töluverður tími áður en honum skolar upp á land hér og sumir drumbarnir verða ormétir á leiðinni.
Meira um mig
Ég hef lengi verið heilluð af rekavið og sérkennilegu útliti hans. Sérstaklega ormétnum rekavið. Fyrir mér er það skemmtileg og spennandi áskorun að búa til nýtilega hluti úr efnivið sem talinn er ónýtur.
Það er líka eitthvað heillandi við það að færa fjöruna heim í stofu. Bera fram osta á bakka sem hefur útlit og áferð rekaviðarins, hengja drumba á veggi eða kveikja á peru á stubbum úr efni sem fólk kannast við úr fjörunni.
Stundum vinn ég viðinn meira og þá sést vel hvað rekaviðurinn getur verið mikið gæða efni. Ég vil samt að fólk kannist við útlit og áferð rekaviðarins þvi eru munirnir sem ég smíða svolítið hráir en samt unnir og stílfærðir á minn hátt.
Það er ýmislegt sem þarf að huga að þegar svona efniviður er unninn. Þegar ég geri ostabakkana þvæ ég þá til að mynda úr sótthreinsandi og örverudrepandi efni, fylli í holur með plastefni ef það á við og lakka svo yfir allt saman. Það geri ég til að auðvelda þrif og að maturinn festist ekki í götum og rifum.