Um mig
Ég heiti Ólöf Birna Björnsdóttir.
Ég útskrifaðist sem upplýsingatæknikennari úr KI árið 2008.
Ég vann í bókhaldi á árunum 1999 til 2003.
Ég útskrifaðsti af hönnunarbraut Iðsnskólans í Hafnarfirðið árið 1998.
REKAVIÐUR ER HEILLANDI
Rekaviður hefur alltaf heillað mig og þegar ég flutti á Strandir haustið 2014 fékk ég frábært tækifæri til að vinna með þennan efnivið. Rekaviðurinn á sér langa sögu og margt hægt að gera úr honum. Megin hugmyndin hjá mér er að skapa eitthvað nýtiegt úr efnivið sem ekki er lengur talin nýtilegt eða er ónýttur.
Það sem kom mér á óvart var að ég heillaðist af ormétnum við og ónýtum spítum en kannski af því það er eitthvað svo spennandi að bera fram osta og annan mat.
Í FJÖRUNNI ER MARGT SEM HEILLAR
Í fjörunni er margt sem heillar og ég á oft erfitt með að velja eitthvað til að vinna með. Ég gæti næstum því tekið hvaða spítu eða drumb og unnið eitthvað úr honum. Ég er samt orðin fljót að sortera úr og sjá hvað það er sem ég vill vinna með.
Ég enda samt oft á að koma heim með ónýtt drasl eins og maðurinn minn kallar það. Það er bara eitthvað við þessar ónýtu spítur og ormétna við sem mér finnst heillandi. Kannski bara sú staðreynd að þetta er talið ónýtt og eitthvað sme kitlar mig við að gera þetta að nytjahlut. Það er líka eitthvað við að bera fram veitingar á brettum sem búnar er til úr rekavið. Þess vegna finnst mér oft gaman að hafa bakkann eins og hann kemur úr fjörunni enað sjálfsögðu unnin þannnig að hann sé hæfur til framreiðslu.
Það er samt margt sem þarf að huga að þegar svona efniviður sem er ætlaður til framreyðslu er unnin. Ég þvæ hverja spítu úr sótthreinsandi og örverudrepandi efni, ákveð hvernig best er að ganga frá honum eftir því hvort hann er mjúkur eða harður og þéttur. Í ormétna viðnum þá hef ég verið að prufa mig áfram með að fylla í holurnar með plastefni svo maturinn festist ekki í skorum og holum.
REKAVIÐUR Á SÉR MERKILEGA SÖGU
Veruleg vakning hefur verið síðustu ár á að nýta rekavið betur. En ein ástæða þess að hann er ekki nýttur er lágt verð á innfluttu timbri á móti töluverðum kostnaði við tækjabúnað og flutninga á rekaviðnum. Samkeppni er því erfið og lítið að hafa fyrir vinnuna. Allur efniviður er rekaviður sem er týndur á Ströndum, nánar tiltekið í landi Kaldrananess og kdsjfsldjfslk og að sjálfsögðu með leyfi landeigenda.
100% SECURE ORDERING
I'm a paragraph. Click here to add your own text and edit me. It’s easy. Just click “Edit Text” or double click me to add your own content and make changes to the font. I’m a great place for you to tell a story and let your users know a little more about you.
PRIVACY POLICY
I'm a paragraph. Click here to add your own text and edit me.
UM MIG
